Fara beint í efni

Íslenskt CRM kerfi sem framkvæmir og skráir

Grunnur er íslenskt CRM kerfi sem fangar tölvupósta, fundi, upplýsingar um fólk og fyrirtæki sjálfvirkt og breytir þeim í tækifæri. Kerfið lærir á þinn rekstur og heldur utan um ferla.

  • Skeljungur
  • Terra
  • Myllan
  • Faxaflóahafnir
  • Styrkás
  • Heimar

Byggt fyrir fyrirtækisem vilja eyða minni tíma í kerfin og meiri tíma í sína viðskiptavini.

Eitt vinnusvæði fyrir viðskiptavininn

Allt sem teymið þarf til að sjá stöðuna og færa vinnuna áfram

Grunnur tengir saman upplýsingarnar og verkefnin sem annars lenda í aðskildum kerfum. Hver starfsmaður sér það sem skiptir máli fyrir sína vinnu án þess að viðskiptavinasagan slitni í sundur.

Haltu sölunni á hreyfingu. Sjáðu tækifærin eftir stöðu, ábyrgðaraðila, upphæð og líkum á sölu. Sölufólk veit hvað þarf að gerast næst og stjórnendur sjá raunhæfari mynd af væntanlegum tekjum.

Skoða sölupípuna

Næsta skref á hverju tækifæri

Hvert tækifæri hefur eiganda og næsta verkefni, svo ekkert dettur á milli stafs og hurðar.

Vegin tekjuspá

Líkur hvers sölustigs gefa raunhæfari mynd af væntanlegum tekjum en heildarvirði pípunnar eitt og sér.

Svaraðu úr einni biðröð. Safnaðu þjónustusamskiptum á einn stað og flokkaðu eftir stöðu, ábyrgð, forgangi, rás og eftirfylgni. Færri skilaboð gleymast og viðskiptavinurinn þarf síður að endurtaka sig.

Skoða þjónustuborðið

Þjónustufrestir

Sjónræn merki sýna hvaða samtöl eru að verða of sein og hvaða mál þurfa athygli fyrst.

Innri athugasemdir

Skrifaðu athugasemdir til samstarfsfólks við samtalið án þess að þær fari til viðskiptavinarins.

Sjáðu alla söguna. Tölvupóstar, samtöl, tengiliðir, tækifæri, tilboð, verkefni og áskriftir tengjast öll sama fyrirtækinu.

Skoða viðskiptavinaskrá

Hápunktar á einni síðu

Tengslastyrkur, næsti viðburður og helstu upplýsingar efst á fyrirtækjaspjaldinu.

Tengiliðir fyrirtækisins

Allir tengiliðir á einum stað og hver í teyminu hefur talað við hvern.

Sjálfvirk skref. Búðu til reglur sem stofna verkefni, færa tækifæri, úthluta samtölum eða skrá virkni.

Skoða sjálfvirkni

Reglur sem vinna verkið

Þegar tækifæri færist eða samtal berst gerist næsta skref sjálfkrafa.

Spurðu Grunn á íslensku

Spyrðu um viðskiptavini, sölu og verkefni og fáðu svar úr þínum eigin gögnum.

Frá tilboði að tekjum. Útbúðu tilboð, sendu í undirritun og tengdu samþykkt tilboð við sölu og áskriftir.

Skoða tilboð og áskriftir

Vörur og áskriftir

Skráðu vörur og endurteknar þjónustulínur með verði, gjaldmiðli og tímabili.

Staða tilboða

Sjáðu hvort tilboð er í vinnslu, sent, samþykkt eða hafnað.

Staðan án stöðufundar. Fylgstu með sölu, þjónustu, verkefnum, áskriftartekjum og samþykktum í rauntíma.

Skoða skýrslur

Áætlaðar tekjur fram í tímann

Sjáðu væntanlegar tekjur næstu mánaða út frá pípunni og áskriftunum.

Þjónusta eftir rás

Sjáðu hvaðan þjónustumálin koma og hvar álagið er mest.

Færðu vinnuna áfram

Spyrðu Grunn um viðskiptavini, sölu, verkefni eða þjónustusamskipti. Aðstoðarmaðurinn getur hjálpað þér að finna upplýsingar, undirbúa fund, draga saman stöðuna og koma næsta verkefni af stað.

Kerfi sem passar fyrirtækinu

Byrjið á því sem þið þurfið. Bætið við þegar þið vaxið

Ekki þurfa öll fyrirtæki sama kerfið. Í Grunni er hægt að byggja vinnusvæðið úr einingum og sýna teyminu aðeins þá hluta sem það notar. Þannig verður leiðsögnin einfaldari, innleiðingin skýrari og fyrirtækið greiðir ekki fyrir flækjustig sem það þarf ekki.

Sama viðskiptavinasaga.
Rétta yfirsýnin fyrir hvert teymi

Sala

Sjáðu tækifærin, næstu skref og samskiptasöguna án þess að eyða sölutíma í skráningu.

Fyrir söluteymi

Þjónusta

Svaraðu úr einni biðröð og sjáðu viðskiptavininn, fyrri samskipti og opin verkefni við hlið samtalsins.

Fyrir þjónustuteymi

Fjármál

Haltu utan um samþykktir, áskriftir, tilboð og endurteknar tekjur með skýrri ákvörðunarsögu.

Fyrir fjármál

Stjórnendur

Sjáðu hvað er að gerast í sölu, þjónustu og verkefnum án þess að þurfa að kalla eftir stöðuskýrslum.

Fyrir stjórnendur

„Það var kominn tími á nýjar Mínar síður hjá Heimum og fórum við í þá vinnu með Norda. Sjáum sannarlega ekki eftir þeirri ákvörðun. Allt gekk hratt og örugglega fyrir sig, uppsetning var einföld með Grunni og hefur þjónustan við okkar viðskiptavini stóraukist.

Allskonar viðbætur í vinnslu og þá er svo frábært hversu auðvelt er að byggja ofan á Grunn. Við hlökkum til áframhaldandi þróunar.“

HeimarPétur Rúnar Heimissonmarkaðs- og þjónustustjóri Heima

„Það var ferskur blær að fá upp þjónustugátt á örskotsstundu í stað þess að þurfa að fara í víðtækt þróunarferli.

Með Grunni vorum við komin með nýjan og notendavænan þjónustuvef á mikið styttri tíma en við þorðum að vona.“

TerraHildur Emilsdóttirverkefnastjóri stefnumótunar og umbóta hjá Terra
Hvað er Grunnur?

Grunnur er íslenskt CRM kerfi: viðskiptavina- og rekstrarvinnusvæði frá Norda. Þar er hægt að halda utan um fyrirtæki, tengiliði, sölu, þjónustusamskipti, verkefni, tilboð, áskriftir og samþykktir.

Er Grunnur aðeins fyrir söluteymi?

Nei. Grunnur er hannaður fyrir teymi sem vinna saman um viðskiptavininn, meðal annars sölu, þjónustu, fjármál og stjórnendur.

Þurfum við að taka allar einingar í notkun?

Nei. Hægt er að velja þær einingar sem henta starfseminni og bæta fleirum við síðar.

Getur Grunnur tengst öðrum kerfum?

Grunnur er hannaður með tengingar við tölvupóst, bókhaldskerfi, vefi og önnur vinnukerfi í huga. Tiltækar tengingar ráðast af uppsetningu og innleiðingu hvers fyrirtækis.

Er Grunnur á íslensku?

Já. Grunnur er þróaður með íslenskt viðmót og íslenska notendur í huga.