Sjáðu alla söluna á einu bretti
Færðu tækifæri á milli sölustiga, sjáðu upphæðir, eigendur og næstu verkefni og aðlagaðu ferlið að því hvernig fyrirtækið selur.
Sjáðu hvað er í pípunni, hvaða tækifæri þurfa athygli og hvaða sala er líkleg til að skila sér. Grunnur hjálpar söluteyminu að einbeita sér að næsta skrefi í stað þess að viðhalda kerfinu.
Færðu tækifæri á milli sölustiga, sjáðu upphæðir, eigendur og næstu verkefni og aðlagaðu ferlið að því hvernig fyrirtækið selur.
Tækifæri tengjast fyrirtækjum, tengiliðum, tölvupóstum, verkefnum, fundum og tilboðum. Sölumaðurinn sér því ekki aðeins hvar tækifærið er statt heldur einnig hvað þarf að gerast til að færa það áfram.
Líkur hvers sölustigs hjálpa stjórnendum að greina á milli heildarvirðis pípunnar og veginnar tekjuspár.
Búðu til fleiri en eitt söluborð, breyttu stigum, litum og líkum og bættu við þeim upplýsingum sem skipta ykkar sölu máli.

Flest söluteymi eiga sér sölupípu, en hún býr oft á mörgum stöðum í einu: í töflureikni sem einn heldur við, í pósthólfi sölumannsins og í minni þeirra sem sátu síðasta fund. Þegar stjórnandinn spyr um stöðuna þarf einhver að safna henni saman. Þegar sölumaður fer í frí veit enginn hvaða tilboð bíða svars.
Gott sölukerfi leysir þetta ekki með fleiri reitum til að fylla út. Það leysir það með því að hafa söluna á sama stað og samskiptin, viðskiptavinina og næstu verkefni, svo að skráningin verði hluti af vinnunni en ekki aukaverk í lok dags. Þannig er Grunnur hugsaður sem CRM fyrir sölu.
Þú stofnar tækifæri á fyrirtæki og tengilið, til dæmis eftir fund, fyrirspurn eða símtal. Það fær upphæð, eiganda og sölustig.
Verkefni, fundir og tölvupóstar tengjast tækifærinu. Þú sérð hvað gerðist síðast og hvað þarf að gerast næst, án þess að leita í pósthólfinu.
Á söluborðinu dregur þú tækifærið áfram þegar staðan breytist. Hvert stig hefur sínar líkur, svo vegin tekjuspá uppfærist um leið.
Þegar kemur að verði útbýrðu tilboð úr vörum og þjónustu sem tengist sama tækifæri og sama viðskiptavini.
Niðurstaðan er skráð og fer beint í skýrslur. Ef samningurinn felur í sér endurteknar greiðslur getur hann haldið áfram sem áskrift.
Sumar sölur fylgja ekki sama ferli. Þess vegna getur þú haft fleiri en eitt söluborð, til dæmis eitt fyrir nýja viðskiptavini og annað fyrir endurnýjanir eða stærri verkefni, hvert með sínum stigum og líkum.
Sölupípan stendur ekki ein. Hún sækir samhengið sitt í aðrar einingar og skilar upplýsingum til baka:
Fyrirtækjaspjaldið sýnir tækifærin við hlið tengiliða, samskipta og þjónustumála.
SkoðaTilboð byggjast á tækifærinu og samþykkt tilboð geta orðið að áskriftum.
SkoðaSölufólk sér hvort viðskiptavinurinn er með opin þjónustumál áður en það hringir.
SkoðaVirði pípunnar, vegnar tekjur, unnin og töpuð tækifæri í einni mynd.
SkoðaReglur stofna verkefni þegar tækifæri verður til og láta rétta fólkið vita þegar sala vinnst.
SkoðaÞú getur líka spurt kerfið á íslensku hvaða tækifæri eru í hættu eða beðið um samantekt fyrir fund með viðskiptavini.
Sölukerfið hentar íslenskum fyrirtækjum sem selja til annarra fyrirtækja, eru með fleiri en einn sölumann eða þurfa að fylgja tækifærum eftir yfir vikur og mánuði. Það hentar líka fyrirtækjum sem halda í dag utan um söluna í Excel og finna að skjalið er hætt að duga. Í samanburðinum á CRM og Excel er farið yfir merkin um að sá tími sé kominn.
Ef þú ert að bera saman kerfi almennt er leiðarvísirinn um CRM kerfi góður staður til að byrja.
Nei. Þú stillir sölustig, liti, líkur og reiti eftir því hvernig fyrirtækið selur í dag. Ferlið aðlagast ykkur, ekki öfugt.
Já. Innflutningur gagna er hluti af innleiðingunni með Norda, svo þið byrjið ekki á tómu kerfi.
Já. Þú getur prófað Grunn frítt í 30 daga eða bókað kynningu og séð söluborðið með ykkar ferli í huga.

Vafrakökur
Þessi vefur notar nauðsynlegar vafrakökur til að virka. Aðrar bætast aðeins við ef þú samþykkir þær.