Ein biðröð fyrir allt þjónustuteymið
Tölvupóstur, vefspjall, vefeyðublöð og aðrar tengdar rásir geta lent í sama vinnuferli. Hvert samtal fær stöðu, forgang, ábyrgðaraðila og þjónustufrest.
Safnaðu þjónustusamskiptum á einn stað, óháð því hvaðan þau berast.

Þjónustuborð
Tengdu pósthólf, vefspjall, vefform, samfélagsmiðla og önnur kerfi við Þjónustuborðið. Erindi berast sjálfkrafa á einn stað, svo teymið getur unnið saman að þjónustunni án þess að skipta stöðugt á milli kerfa.
Tölvupóstur, vefspjall, vefeyðublöð og aðrar tengdar rásir geta lent í sama vinnuferli. Hvert samtal fær stöðu, forgang, ábyrgðaraðila og þjónustufrest.
Við hlið samtalsins sér starfsmaðurinn tengiliðinn, fyrirtækið, fyrri samskipti, opin tækifæri og tengd verkefni. Viðskiptavinurinn þarf síður að útskýra söguna aftur.
Starfsfólk getur skrifað innri athugasemdir, fylgst með máli og skipt um ábyrgðaraðila án þess að innri samskiptin séu send út.
Sjónræn merki sýna hvaða samtöl eru að verða of sein og hvaða mál þurfa athygli fyrst.

Í mörgum íslenskum fyrirtækjum er þjónustan rekin úr sameiginlegu pósthólfi. Það virkar á meðan fáir svara, en fljótlega fara að koma upp sömu spurningarnar: Er búið að svara þessum? Hver tók þetta mál? Hvað sögðum við síðast við þennan viðskiptavin? Skilaboð af vefspjalli og vefformum bætast svo við á enn öðrum stöðum.
Þjónustuborð Grunns er beiðnakerfi sem safnar þessu saman. Hvert erindi verður að samtali með stöðu, forgangi, ábyrgðaraðila og þjónustufresti, og allt teymið vinnur úr sömu biðröð. Þetta er helpdesk á íslensku, smíðað fyrir íslensk fyrirtæki frá upphafi, en ekki þýtt erlent kerfi.
Viðskiptavinur skrifar í vefspjallið á vefnum ykkar eða sendir inn vefform og samtalið birtist í biðröðinni með öllum upplýsingum.
Starfsmaður tekur það að sér eða sjálfvirk regla úthlutar því eftir rás, forgangi eða tegund og bætir við merki.
Við hlið samtalsins sérðu tengiliðinn, fyrirtækið, fyrri samskipti, opin tækifæri og verkefni. Þú þarft ekki að biðja viðskiptavininn að útskýra söguna aftur.
Ef þú þarft aðstoð skrifar þú innri athugasemd eða færir málið á annan ábyrgðaraðila. Viðskiptavinurinn sér aðeins svörin.
Sjónræn merki sýna hvaða mál eru að nálgast þjónustufrest, svo þau gleymast ekki í biðröðinni.
Samtalið verður hluti af viðskiptavinasögunni og birtist í skýrslum.
Vefspjall og vefform eru tilbúin í dag, og með forritaskilunum (API) getur þú opnað samtöl úr eigin kerfum. Tenging við sameiginlegt Gmail-pósthólf er í prófun. Þá verður póstur á þjónustunetfangið að samtali og svörin fara út frá sama netfangi. Messenger, Instagram og Microsoft 365 pósthólf eru væntanleg. Á tengingasíðunni sérðu alltaf nýjustu stöðuna.
Þjónusta og sala tala oft við sama fólkið. Í Grunni eru þjónustumálin skráð á sama viðskiptavinaspjald og sölutækifærin.
Þjónustumálin eru skráð á sama viðskiptavinaspjald og sölutækifærin.
SkoðaSöluteymið sér hvort viðskiptavinur er með opið mál áður en það hringir.
SkoðaSkýrslur sýna opin mál, stöðu samskipta, rásir og þjónustufresti.
SkoðaLáttu reglur úthluta nýjum málum og spyrðu kerfið á íslensku hvað gerðist í síðustu samskiptum við viðskiptavin.
SkoðaÞjónustuvefur sem gefur viðskiptavinum einn stað til að nálgast skjöl, erindi og þjónustu.
SkoðaSvarar spurningum á vefnum út frá ykkar eigin upplýsingum og tengir samtölin beint við þjónustuborðið.
SkoðaÞjónustuborðið hentar fyrirtækjum þar sem fleiri en einn svara viðskiptavinum, þar sem erindi berast úr fleiri en einni átt eða þar sem skiptir máli að svara innan ákveðins tíma. Það hentar sérstaklega vel þegar sala og þjónusta þurfa að sjá sömu söguna. Í leiðarvísinum um CRM kerfi er farið nánar yfir hvernig þjónustuborð og CRM vinna saman.
Í pósthólfi sérðu skilaboð. Í þjónustuborði sérðu mál með stöðu, ábyrgðaraðila, forgangi og fresti, ásamt sögu viðskiptavinarins við hliðina.
Já. Grunnur er byggður úr einingum og þú getur byrjað á því sem leysir stærsta vandann í dag og bætt við síðar.
Já, viðmótið er á íslensku og kerfið er þróað fyrir íslenska notendur. Þú getur prófað það frítt í 30 daga.

Vafrakökur
Þessi vefur notar nauðsynlegar vafrakökur til að virka. Aðrar bætast aðeins við ef þú samþykkir þær.